Deebytta býr hér
Litlu snúllurnar
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1815 dögum
05.05.2008 17:49:43 / deebytta

Met í leti!

Jahá... Er algjörlega dottin út úr þessu netsamfélagi... komst inn í facebook á tímabili en er orðin jafnlöt við það! Maður dettur svona inn í þetta annað slagið... mér leiðist til dæmis núna, á að vera að læra fyrir próf... bara svo mikið að gerast þessa dagana annað en próflestur að ég veit eiginlega ekki alveg hvernig ég á að haga mér. Tókst á einhvern undraverðan hátt að troða í mig einbeitni fyrir prófið sem var í morgun þó ég var stundum á mörkunum. En svona er þetta...
ætlaði nú ekkert að væblast til að skrifa eitthvað hér er gerði það samt
take care


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 22:12:55 / deebytta

mætt again...

hæhæ, datt í hug að skella hér inn nokkrum línum fyrst ég fór að uploada nýjum myndum. Ætlaði að setja bara inn myndir frá árshátíðinni sem var um síðustu helgi en fyrst ég var nú byrjuð að þessu á annað borð þá setti ég líka inn nokkrar myndir frá einu mjög skemmtilegu kvöldi í desember þar sem að við hittum Ingva bróður niðrí bæ í fyrsta sinn syngjandi og dansandi við Boten Ana á Hressó! Þetta eru ekki neitt rosalega margar myndir, var til dæmis miklu duglegri með myndavélina á árshátíðinni í fyrra en þetta er þó eitthvað... linkarnir eru undir Myndir hérna vinstra megin og heita Lybbaárshátíð ´07 og Brósi í bænum! Njótið vel... ;)

ps. ákvað líka að breyta um útlit á síðunni ef þið tókuð ekki eftir því... ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 11:24:10 / deebytta

Gamla

Jæja, þá er ég opinberlega orðin árinu eldri... mun halda upp á afmælisdaginn með æfingu í verklegri lífrænni efnafræði sem virðist vera lengri en allt sem langt er... snýst að miklu leyti um að bíða í klukkutíma hér og þrjú korter þar og svo framvegis... jibbí! Annars mun ég bara taka því rólega í kvöld, afmælismatur heima hjá pabba og síðan mín venjulega sjónvarpsdagskrá á miðvikudagskvöldum. Annars verður eitthvað meira gert um helgina í tilefni afmælisins... matarboð á laugardaginn og á sunnudaginn verður annaðhvort kaffi eða súpuboð hérna heima. Síðan verður Gunni hérna fyrir sunnan þannig að það gerist ekki betra :) Spurning um að fara að drífa sig í skólann... svaf aðeins lengur í morgun heldur en ég ætlaði mér... og það þrátt fyrir öll afmælis smsin og hringingarnar fyrir klukkan tíu! bæjó

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 00:01:22 / deebytta

bloggletinginn mættur aftur...

Ok, þegar að Gunni er farinn að kvarta yfir bloggleysi hjá mér þá hlýtur eitthvað að vanta upp á dugnaðinn hjá mér í þeim efnum... það er af sem áður var þegar að ég bloggaði nánast á hverjum degi þegar að ég var veik heima í 4 vikur enda lítið annað að gera á þeim tíma... núna finnst mér ég hafa of mikið að gera en geri samt voða lítið... hmm... ég er reyndar byrjuð að vinna aftur á Hrafnistu til að sleppa við að fá fyrirframgreidd námslán... tek vaktir um helgar og svo er ég á næturvöktum á virkum dögum þar sem að það er eini tíminn sem að ég get unnið og lært á sama tíma. Neita því ekki að daginn eftir þá er ég í frekar þreyttari kantinum en ég læt mig hafa það þar sem að peningar vaxa ekki á trjám. Síðan var ég byrjuð í ræktinni aftur eftir allt veikindavesenið fyrir jól nema hvað að auðvitað tókst mér að veikjast aftur þegar að ég var komin á gott skrið. Ætla samt að skella mér á morgun og koma mér af stað á nýjan leik. En það virðist sem svo að ég þurfi ekkert endilega á hlaupabrettið til að léttast því með afskaplega gloppóttum törnum og engu spes matarræði þá hefur mér tekist á einhvern óskiljanlegan hátt að léttast um 8 kíló síðan í október. Þannig að ef ég tek mig til og tek sama pakkann á þetta eins og fyrir ári síðan þá verð ég komin í hrikalegt form fyrir vorið þar sem að hlutirnir gerast frekar mikið hratt hjá mér.

Annars fer að styttast í afmælið mitt... ég er að verða árinu eldri næsta miðvikudag og hvað sem hver segir þá er ekkert grátt hár farið að sjást á mínu höfði! Gunni kemur og verður yfir afmælishelgina hérna fyrir sunnan og ég hlakka mikið til... er ekki búin að hitta hann síðan ég var fyrir norðan helgina sem hann átti afmæli þannig að það er tími til kominn. Ætla að bjóða Hrund og Ella í mat á laugardeginum og vera síðan með smá kaffiboð á sunnudeginum... hvort annað verði á dagskrá kemur í ljós síðar.

Spurning um að fara að halla sér og láta þetta nægja í bili... læt í mér heyra næst þegar ég nenni... góða nótt:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 19:43:21 / deebytta

Nýtt ár 2007

Núna hlýtur að vera kominn tími til að óska fólki gleðilegs nýs árs! Ótrúlega fljótt að líða síðasta ár enda nóg um að vera hjá mér... án þess að vera að telja allt nákvæmlega upp sem að var í gangi þá má segja í stuttu máli þetta: Ég tók þátt í fegurðarsamkeppnum, flutti heim til mömmu aftur, fór tvisvar til útlanda, skellti mér á þjóðhátíð, tókst að veikjast og missa of mikið úr skólanum... tók samt öll prófin og náði þeim og hélt síðan gleðileg jól. Og einhvers staðar inn á milli þessa þá var mér kippt út af markaðnum og ég gæti ekki verið ánægðari með það! :) Og svo kom gamlárskvöld sem var í rólegri kantinum hjá mér þar sem að mín ákvað að vera edrú... ótrúlegt en satt... borðaði bara góðan mat, kíkti svo í partý til Tobbu og Danna og komin heim í rúm fyrir 6! Var svo fyrir norðan síðustu dagana í jólafríinu og auðvitað var það yndislegt... og þrátt fyrir matar- og kaffiboð með ömmum og frænkum og frændum, komst víst ekki upp með annað eftir jólaboðin sem að Gunni var dreginn í. Síðan byrjaði skólinn í gær... úff, það tekur á að fara að snúa sólarhringnum aftur við... ég hélt varla höfði í morgun þegar að komið var fram í lífefnafræði tímann! Núna er ég að berjast við að halda mér vakandi en ég ætla að vera komin upp í rúm klukkan níu og sofnuð fyrir tíu eða hálf ellefu takk fyrir! Ætla ekki að fara að lengja mál mitt neitt frekar... later...


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 02:04:32 / deebytta

jólablogg

Jæja, er ekki kominn tími til að óska fólki gleðilegra jóla og þakka allt liðið... ég var ekki beint í jólakortunum núna í ár... þetta verður að duga! ;) Ég vona að allir hafi haft það gott sl. daga... það er allavega búið að vera mjög fínt hjá mér! Góður matur og fullt af pökkum... fékk m.a. ipod, heilar tvær tölvutöskur og geisladiskinn með Justin Timberlake sem er núna í algjöru uppáhaldi hjá mér og ég held mér hafi meira að segja tekist að snúa Gunna yfir á mitt band svona á síðustu stundu áður en hann fór aftur norður í dag! hehe ;)

Er núna bara búin að sitja í rólegheitunum upp í rúmi að horfa á tónleikana með Sálinni og gospelkórnum og ég verð að viðurkenna að mér fannst þeir bara mjög flottir enda held ég að Sálin sé eina íslenska hljómsveitin sem ég sætti mig við að spili bara lög eftir sjálfa sig þar sem þeir eru alls ekki slæmir lagasmiðir. Fólk má alveg vera ósammála mér ef það vill! Síðan er að byrja einhver íslensk mynd sem mig langar að kíkja á og svo eyði ég nóttinni í að horfa á Desperate housewives 2 sem ég fékk lánað hjá Tobbu því ég geri hvort eð er ekki ráð fyrir að sofa neitt mikið. Þarf að venja mig við að sofa ein aftur allavega næstu daga og ábyggilega alveg fram í janúar einhvern tímann... því miður en svona er þetta nú. Verð að játa mig algjörlega sigraða í þessari sjálfstæðisbaráttu sem ég hóf fyrir meira en ári síðan! Nema í þetta sinnið er ég ekki tapsár og lem bróður minn með fjarstýringu eins og eftir Newcastle leikinn í dag! ;)

Held að myndin sé að byrja en ég læt heyra í mér sooner or later! :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 16:22:27 / deebytta

allt komið!

Ég hef greinilega ekki verið að eyða of miklum tíma í þetta blogg mitt síðustu daga enda nóg búið að vera að gera. Ég kláraði prófin núna á miðvikudaginn og gekk sæmilega bara á heildina litið... kemur í ljós þegar að þessir blessuðu kennarar nenna að henda einkunnunum inn á ugluna. Síðan tók ég fimmtudag og föstudag í að klára jólainnkaup og þrífa herbergið mitt. Hef aldrei verið búin að öllu svona snemma... venjulega er ég að klára að pakka inn seint á aðfangadag en núna á ég í raun ekkert eftir nema að skila pökkunum af mér. Þannig að fyrir mér mega jólin alveg fara að koma bara! :) Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili... þarf að hitta á pabba minn eftir örfáar mínútur! seinna...

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 17:35:40 / deebytta

1 próf búið

Jæja, þá er ég búin í fyrsta prófi, lífeðlisfræði II... gekk betur en ég þorði að vona þar sem að ég er búin að vera veik í vikunni og ekki beint í lestrarformi. En þetta hófst sem betur fer og ég er allaveganna pottþétt búin að ná einu prófi af fjórum! :) Þá er bara að setja sig í gír fyrir næsta próf sem er Sýkla- og veirufræði á þriðjudaginn... mikill lestur en þetta reddast ;) later

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 11:36:10 / deebytta

úpps...

Jiii, ég er nú meiri deebyttan... ætlaði að vera frekar róleg í gær en nei... ekki hún ég... held ég hafi vakið mömmu og systkinin þegar ég kom heim... brósi var nú ekki sáttur með það en hann er bara ekkert skárri sjálfur! Tókst að verða batteríslaus og ákvað þá að drífa mig upp í leigubíl og beinustu leið heim í rúm... síðan eru að koma alveg hellingur af fólki hérna á eftir í jólaföndur en ég held ég sleppi þeim pakka... Jæja... best að halda áfram að læra!

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 13:35:06 / deebytta

Bloggletinginn skrifar...

Það hlýtur að vera kominn tími til að skrifa nýja færslu... allaveganna er nóg búið að gerast hjá mér þó ég nenni ekki að segja frá því öllu. Ég hitti stelpurnar sem voru með mér í Ungfrú Ísland á fimmtudaginn og fórum við út að borða og kíktum svo á Herra Ísland með tilheyrandi eftirpartýi og svona. Mér fannst bara mjög gaman þrátt fyrir afskaplega mikið edrú ástand á mér. :) Mér tókst reyndar aðeins að bæta úr því um helgina þegar að ég kíkti norður til Gunna. Bjórdrykkjan var bara nokkuð ágæt hjá mér... þó ég veit ég hefði getað miklu betur! ;) Annars stóð maður nú ekki í bjórnum alveg allan daginn, við spiluðum póker (en samt meira bara strákarnir... ég fékk að kinka kolli eða hrista hausinn annað slagið... ;) ), fórum svo í leikhús á laugardeginum og horfðum á Newcastle vinna Portsmouth svo dæmi sé nefnt... Helgin var of fljót að líða og áður en ég vissi af var ég komin aftur suður þar sem að ekkert beið mín nema próflestur... sem ég hef reyndar ekki alveg komist í gír með en það fer allt að koma! Mér tókst að gleyma myndavélinni minni heima þannig að ég verð bara að láta eina mynd frá Akureyrarferðinni í fyrra fylgja með... sem sýnir kannski hvað best hvernig ástandið hefði getað orðið á sumum þessa helgi... ;)

Hiddi tók það ekki í mál að endurtaka þennan leik! ;)

Jæja, ætli ég reyni ekki að opna einhverja bók núna... svona til tilbreytingar... ;) later...


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 16:11:34 / deebytta

hæhæ :)

 



Já, þetta er víst síðasta skoðanakönnunin sem var í gangi og það kemur greinilega í ljós að fólk var almennt ekki á þeirri skoðun að ég ætti að fá mér tattoo... en af því að ég er svo mikill prakkari þá stóðst ég ekki freistinguna á föstudaginn og fór með bróður mínum og Sigga frænda og lét barasta af því verða! Það voru ekkert smá mikið af flottum myndum í möppunni hjá tattoo gaurunum þannig að það tók mig smá tíma að ákveða hvernig tattooið átti að vera en síðan fann ég eitt sem að hann breytti örlítið eftir mínum óskum og hérna kemur útkoman! :D

Hvernig finnst ykkur? ;)

Annars var fleira í gangi á föstudag heldur en tattooið... ég fór í endurkomutíma upp á Landspítala um morguninn þar sem að mér var sagt að allt liti bara nokkuð vel út og svo var hringt eftir niðurstöðum úr rannsóknum sem voru gerðar eftir aðgerðina og fékk þá staðfest hvað þetta var sem að læknarnir fjarlægðu. Þannig að nú er bara að krossleggja fingur og vona að ég lendi ekki í þessu aftur og þá er líka eins gott að ég fari eftir því sem að læknirinn sagði mér að gera til að koma í veg fyrir það.

Síðan fór ég líka í verklegan tíma í veirufræði á föstudaginn þar sem að við vorum að mæla mótefni í blóðinu okkar... þar kom í ljós að ég var með mótefni gegn öllu nema herpes... ég veit að ég hef fengið hlaupabólu og verið bólusett gegn mislingum en síðan hef ég fengið cmv og hettusótt án þess að vita af því fyrst ég var með mótefni gegn því líka. En herpes hef ég greinilega aldrei fengið og það er ekki bólusett gegn veirunni þannig að ég er ein af þeim fáu (eða a.m.k. í minnihluta Íslendinga) sem ber hana ekki með sér. Er það ekki bara ágætt! :)

Jæja, það var alveg nóg að gera hjá mér á föstudaginn en almennt var ég frekar róleg um helgina... hélt mig bara heima um kvöldið en kíkti svo í bíó á laugardaginn með stelpunni sem man ekki hvað gaurinn heitir... ;) Og nú tekur bara við próflesturinn þar sem að ég er loksins að klára allt sem að tengist verklegu þessa önnina, formlega sumsé á miðvikudaginn þegar að umræðutíminn í lífeðlisfræðinni er. Á fimmtudag er síðan Ungfrú Ísland hittingur en við ætlum út að borða og fara svo á Herra Ísland... það er alveg rosa langt síðan ég hitti stelpurnar þannig að ég hlakka mikið til! En samt ekki eins mikið til og helgarinnar þegar að ég ætla að rústa vel völdum einstaklingi í póker! ;)

Ætli ég láti þetta ekki nægja bara í bili... er farin að gera eitthvað af viti!


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 12:25:04 / deebytta

Hiphop gellur!

Já, það verða ófáir taktarnir sem að við Guðbjörg og Íris munum koma til með að sýna eftir vísindaferðir á Pravda eftir þessa danstíma... ;) Við byrjuðum sumsé í hiphop dansinum núna á þriðjudagskvöldið og þar sem að ég var ekkert búin að hreyfa mig í of langan tíma þá fékk ég að gjalda þess daginn eftir með þessum líka feitu harðsperrum! En pottþétt þess virði að leggja það á sig eftir fyrsta skiptið því þetta var rosalega gaman... næst á dagskrá hjá okkur er svo að outfitta sig fyrir næsta tíma og þá fáum við líka lögin á disk með okkur heim en tónlistin er bara geðveik! Oh, hlakka svo til í næstu viku! :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 20:55:47 / deebytta

Helgin barasta búin!

Jæja, helgin er liðin og ég get ekki sagt annað en að hún hafi verið bara nokkuð fín! Fór í vísindaferð á föstudaginn og í afmæli til Guðrúnar á laugardaginn þannig að það var nóg um að vera... áfengismagnið sem fór ofan í mig var líka vel yfir meðallagi og þá sérstaklega á föstudaginn! ;) Dísús... svo á laugardaginn voru stelpurnar alltaf að minna mig á fleiri og fleiri atvik sem ég mundi ekkert eftir frá því á föstudeginum... hvort sem það var byltan á Laugaveginum þar sem að við Guðrún gjörsamlega hrundum á jörðina, hænu taktarnir mínir á barnum eða UÍ commentin sem að Guðrún var víst of dugleg við að nota... elskan! Síðan tókst okkur að falla um koll aftur á laugardeginum í afmælinu en þá vorum við í twister þannig að það var alveg hægt að búast við því... ég var annars í mun betra ástandi þá enda langaði ekkert til að endurtaka leikinn frá því kvöldinu áður! Fór því afskaplega varlega í þessi jello skot sem voru í boði og hélt mig bara við bjórinn og bolluna... sumar voru reyndar mun duglegri í skotunum enda aðeins skrautlegri þetta kvöld heldur en ég var... :D Síðan fær Salka sérstakt props fyrir guttann sem hún fór með heim því hún man ekkert hvað hann heitir! Hehe... ;) já, það er svona þegar maður fer ekki heim með “rétta” vininum! ;) Skvísan er svo mikill player! Híhí! ;) Ég fór hins vegar bara ein heim og lenti á afskaplega málglöðum leigubílstjóra sem blaðraði endalaust um bílslys, blótaði hverfinu sem í bý í, kenndi mér að keyra í hringtorgum og tilkynnti svo að það væri búið að vera nóg að gera þessa nóttina hjá gleðikonunni á Hólabrautinni! Áður en ég fór svo út úr bílnum heima benti ég honum afar kurteisislega á að honum veitti ekki af góðum kaffisopa áður en hann héldi áfram að keyra því ég get svo svarið það að hann var næstum búinn að keyra út af tvisvar eða þrisvar sinnum! :S

Allavega þá tókst mér, þrátt fyrir frekar mikla þynnku þessa helgi, að komast vel af stað í skýrslunum í lífrænni efnafræði og kláraði þær síðan í morgun þannig að nú er bara ein eftir og þá er ég barasta búin að redda því sem ég missti úr í veikindunum... og það bara á rétt rúmri viku! :) Voðalega dugleg eitthvað! Síðan klára ég lífeðlisfræðina á miðvikudaginn og þegar að umræðutíminn í þeirri æfingu er búinn þá er bara komið að hard core próflestri... fyrir utan helgina 24.-26. nóv. því þá ætla ég að kíkja norður... hlakka rosa mikið til! :)

Ætla á enda þetta á smá helgartitlum upp á gamanið... ;)

Fall helgarinnar: Deebytta og Guðrún

Jello gellan: Karítas b-stelpa ;)

Höslerinn: Salka.... og það tvöfaldur! Hehe... ;)

Afmælisbarn helgarinnar: Guðrún... þó það sé ekki alveg strax...

Beiler föstudagsins: Guðbjörg... iss iss...

Friends þáttur sunnudagsins: The one with the red sweater...”hey, my sweater!”


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 21:03:41 / deebytta

Ofboðslega dugleg! :)

Já, það vantar ekki upp á dugnaðinn hjá mér þessa vikuna... var í dag að klára fjórðu verklegu æfinguna mína í lífrænni efnafræði þannig að ég á bara eina eftir! Kennarinn minn sagði við mig að þeir bjuggust aldrei við að ég myndi geta klárað þetta þar sem að ég missti úr 4 vikur en það gerði mig bara enn ákveðnari í að sanna að þeir hefðu rangt fyrir sér! Og er nú bara á góðri leið með að takast það! :D Síðan verð ég að massa skýrslurnar um helgina en er samt að pæla í að byrja ekki á því fyrr en seinnipart laugardags þar sem að ég geri ráð fyrir örlítilli þynnku aðeins framan af degi... ;) mín ætlar nefninlega að skella sér í vísindaferð með lybbunum á morgun og ætla loksins að fá að njóta þess í botn... og þar sem að Bjarki og Guðbjörg ætla að beila þá er bara meiri bjór fyrir mig og Írisi! ;) Nema eftir veikindin þá hljóta 2-3 bjórar að vera miklu meira en nóg fyrir mig en það er aldrei að vita að ég verði barasta í staupformi annað kvöld! :haha:

Ætla að fara að gera eitthvað af viti núna... halda áfram að læra eða eitthvað...8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 14:46:04 / deebytta

Föstudagsbloggið...

Hvað er eiginlega að gerast? Mín bara farin að láta heilu dagana líða á milli bloggfærslna! Það er svosem ekkert nýtt að frétta þannig að það gerir nú ekkert til. Það er allavega hætt að blæða úr sárinu sem að opnaðist þannig að það hlýtur að vera góðs viti. Ég þarf bara að passa mig að hafa alltaf hreinan plástur yfir því svo það komi ekki sýking í það. Er alveg komin með nóg af því að taka inn sýklalyf þannig að ég nenni engan veginn að standa í því veseni aftur. Mig reyndar verkjar svolítið á svæðinu í kringum þetta sem er kannski ekki alveg nógu gott en ég meina það var nú einu sinni verið að stinga mann á gat! Þetta hlýtur að ganga til baka á næstu dögum. Ég ætla allavega að mæta í skólann á mánudaginn en þá byrjar hið mikla verklega maraþon... þannig að í raun verða flestir dagar hjá mér þriðjudagar sem að fróðir menn vita að eru ekki beint mínir uppáhaldsdagar! :S En það verður svo mikið að gera hjá mér næstu 2 vikurnar að þetta líður örugglega mjög hratt! Og áður en ég veit af verð ég meira að segja orðin nógu góð til að geta mætt í ræktina aftur... mig er búið að dreyma um þann dag lengi lengi! :D Samt hefur mér nú tekist að léttast svolítið í þessum veikindum án þess að reyna það eitthvað meðvitað en það fylgir víst lystarleysinu sem að hefur stoppað við hjá mér annað slagið síðustu 4 vikurnar! Vá, ég varla trúi því að ég sé búin að standa í þessu í 4 vikur þegar að ég segi það svona! En þetta fer að taka enda og það er ekkert nema gott um það að segja... :)

Ætla núna að fara að skella mér í heimanámið... eins og Hannah segir "setja í fluggírinn!" ;) Læt í mér heyra næst þegar eitthvað er að frétta... eða þegar að mér leiðist... ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagsetning
10. febrúar 2012